Glimrandi er menningarframleiðslufyrirtæki sem leggur áherslu á skapandi sjónvarps- og kvikmyndagerð ásamt því að vinna með tónlistarmönnum. Fyrirtækið býður upp á fræðslu í öllu sem við kemur efnisgerð á farsímum og ráðgjöf vegna kynningarmála.
STARFSMENN

Gísli Þór Guðmundsson er grafískur hönnuður að mennt og starfaði sem slíkur í London í 12 ár. Frá árinu 2006 hefur hann starfað sem umboðsmaður og sinnt stafrænni dreifingu á tónlist. Hljómsveitir og listamenn á hans snærum eru: Vök, Lay Low, Mugison, Hatari og Salóme Katrín.
Gísli Þór er meðstofnandi Glimrandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins þar sem hann vinnur einnig að framleiðslu sjónvarps- og kvikmyndaefnis og heldur utan um fræðslustarf félagsins.
gis [hjá] glimrandi.is

Anna Hildur Hildibrandsdóttir er kvikmyndaleikstjóri og -framleiðandi. Hún starfaði í tónlistargeiranum í 20 ár þar sem hún stýrði meðal annars ÚTÓN og Nordic Music Export. Árið 2017 snéri hún sér að kvikmyndagerð og setti upp fyrirtækið Tattarrattat. Fyrsta mynd Önnu Hildar í fullri lengd er, A Song Called Hate, og fjallar um Eurovision gjörning Hatara. Hún er meðstofnandi Glimrandi og situr í stjórn fyrirtækisins.
annahildur [hjá] glimrandi.is

Tumi Bjartur Valdimarsson er menntaður framleiðandi og leikstjóri. Hann hefur verið sjálfstætt starfandi klippari og tökumaður í rúm 5 ár. Hann hefur unnið fyrir sprotafyrirtæki, tónlistar- og kvikmyndahátíðir og stærri fyrirtæki eins og Stöð 2. Tumi sinnir hinu og þessu sem varðar framleiðslu og klippingu fyrir Glimrandi.
tumibjartur@gmail.com